“Mögnuð bók, opin og einlæg.”

Bókin Frá Hollywood til heilunar eftir Guðnýju Þórunni Magnúsdóttur og Jóhönnu Jónas hefur slegið algerlega í gegn hjá lesendum bæði í prenti og á Storytel og var tilnefnd til Hljóðbókaverðlauna Storytel 2025. Umsagnir lesenda eru hástemmdar og viðbrögð sterk.
Þessi einstaka bók er í senn saga af margslungnu lífshlaupi Jóhönnu ásamt því að vera vönduð sjálfshjálparbók. Bókin, sem er einlæg og hispurslaus, er full af fróðleik til sjálfshjálpar og dýpri þekkingar í sjálfsvinnu. Tilgangur hennar er að hún verði öllum þeim til hjálpar sem eru í sjálfskoðun og að leita að betri líðan í lífinu. Það er óskin og vonin! Margir hafa orðið fyrir miklum innblæstri við lestur hennar.
Bókina er hægt að kaupa í öllum helstu bókarverslunum og á netinu hjá Sögu útgáfu.

Útgáfutilboð og frí heimsending
Umsagnir
“Einstök bók, full af hlýju, visku og lífsreynslu.”
“Berskjölduð ævisaga og líka einstaklega vönduð sjálfshjálparbók.”
„Yndisleg bók og mannbætandi.“
„Einstaklega grípandi og lærdómsrík bók. Sjarmerandi hve höfundur er opinská og einlæg. Mæli eindregið með að hlusta á hana. Margan lærdóm má draga af innihaldi hennar.“
„Frábær bók. Athyglisverð lífssaga og miklar og góðar upplýsingar til sjálfshjálpar. Mjög einlæg frásögn. Vel skrifuð.“
Skyldu lesning! Eitt orð Geggjuð 💝
Stórkostleg bók og þvílík upplifun að hlusta á svo fallega sál tala. Ég þakka fyrir mig. Ég þakka fyrir dáleiðandi lestur Jóhönnu Jónas.
Þessi saga hreyfði mikið við mér. Ég er þakklát fyrir að hafa fundið þessa bók og mæli eindregið með henni ef þú ert að leita að betri líðan. Alveg mögnuð 🙏❤️
„Dásamleg lesning og gefur svo sannarlega ljós í hjarta og trú á betra líf ❤️. „
„Bókin (og ljúfur lestur höfundar) virkaði sem djúp heilun og ferðalag fyrir mig. Tengdi við svo margt 🙏💚. Kærleikur og þakkir til þín Jóhanna 🧡✨
Segðu mér með Sigurlaugu Jónasdóttur
