Ertu með spurningu?
Skilaboð send. Loka

Góðar bækur

Eftirfarandi eru bækur sem ég hef lesið í gegn um árin og mæli eindregið með.
Gott er að skoða listann og athuga þær bækur sem þú dregst að.

Allar bækurnar eru til á amazon.com eða amazon.co.uk

Þið getið smellt á nafn bókarinnar undir hverri mynd til að tengjast upplýsingum um hana á Amazon.
(Stundum líta myndirnar af bókunum öðruvísi út á Amazon, en samt sömu bækurnar :))

rose and book
hands_of_light_frontcover_large_5yvTgf29e5MbxOP

Hendur Ljóssins (Hands of Light)
eftir Barböru Brennan

Einstaklega góð og fræðandi bók um heilun, orksvið og orkustöðvar mannsins. Frábær lesning.  Líka til á íslensku og heitir Hendur Ljóssins.

light emerging

Light Emerging
eftir Barböru Ann Brennan.

Framhald af Hendur Ljóssins. Eingöngu til á ensku. Sérlega fræðandi og gefandi framhaldsbók um heilun mannsins og hin dýpri orkusvið. Stórkostleg lesning að mínu mati.

Power of Now

Mátturinn í núinu
eftir Eckhart Tolle. 

Hafði djúp áhrif á mig varðandi mátt „núvitundar.“ Mögnuð bók um undur mannlegrar vitundar og mátt hennar.

A New Earth

Ný jörð (A New Earth)
eftir Eckhart Tolle. 

Mögnuð framhaldsbók The Power of Now sem fer dýpra í tilgang mannsins hér á jörð og hvernig sé hægt að skapa betri heim með einstaklings og sameignlegum mætti mannkyns. Frábær lesning.

ask_and_it_is_given

Ask and It is Given
eftir Esther og Jerry Hicks. 

Yndisleg bók um Sköpunarlögmálið og hinn skapandi mátt sem hver einstaklingur hefur í lífinu. Mjög upplyftandi og lífgefandi lesning.

you-can-heal-your-life

You Can Heal Your Life
eftir Loise L. Hay. 

Einnig mjög lífgefandi lesning um sjálfsheilunarmátt mannsins og hvernig má lifa betra og fyllra lífi. Hennar eigin saga er mögnuð. Er til í íslenskri þýðingu og heitir: Hjálpaðu sjálfum þér.

heal-your-body1

Heal your body
eftir Loise L. Hay.

Ansi merkileg bók þar sem Loise skráir niður hennar túlkun á mögulegum undirliggjandi huglægum vandamálum líkamlegra kvilla, verkja og veikinda. Hef þessa bók oft við hendina.

Love-Medicine-and-Miracles-cover

Kærleikur, lækningar, kraftaverk
eftir Bernie S. Siegel.

Frábær og fróðleiksfull bók. Eins og segir á bókarkápu: „Reynsla skurðlæknis af einstökum hæfileika sjúklinga til að læknast af sjálfsdáðum.“

seven_spiritual_laws

Lögmálin 7 um velgengni
eftir Depak Chophra.

Einstök bók um sköpunarmátt mannsins og leiðir til að lifa innihaldsríku og gefandi lífi. Að mínu áliti sameinar vel visku „The Secret“ og „The Power of Now.“

Living-with-joy

Lifðu í gleði
eftir Sanaya Roman.

Bók sem ég las fyrir mörgum árum og hafði djúp áhrif á mig. Virkilega góð bók um áhrifamátt gleði og ánægju í lífi hver og eins. Til í Íslenskri þýðingu og heitir Lifðu í gleði

personalpowerthroughawareness

Auktu styrk þinn með næmi og skynjun
eftir Sanaya

Framhaldsbók „Lifðu í gleði“ um að þróa með sér næmi skynjunar til betra lífs og krafts. Mjög lærdómsrík lesning.

Emmanuel´s book

Bók Emmanúels
eftir Pat Rodegast

(sem hefur t.d. unnið náið með Barböru Brennan.) Bók sem ég las fyrir löngu síðan og hafði mjög djúp áhrif á mig og mitt líf. Hún er sett upp í ljóðaformi og eins og segir á bókarkápu er: Leiðarljós til auðugra lífs. Hafði miklar mætur á þessari bók. Til í íslenskri þýðingu.

the undefended self

The Undefended Self
eftir Susan Thesenga. 

Virkilega góð bók um gerð persónuleika mannsins og leið hans til þroska, hvernig sé hægt að lifa á kærleiksríkari og varnarlausari hátt.

Coming to our senses

Coming to our Senses
eftir Jon Kabat-Zinn.

Einstakega góð og fróðleiksrík bók um „Núvitund,“ og leiðir til að auka hana í daglegu lífi sem og hugleiðslu.

Og svo framvegis, og svo framvegis :).

Mun halda áfram að lista fleiri góðar bækur sem ég man eftir og sem ég kem til með að lesa!